Gítarnámskeið / Bassanámskeið.
Komið þið sæl.
Ég heiti Þorgils Björgvinsson og er
gítarleikari ( Sniglabandið ) sem og gítarkennari.
Ég hef verið að kenna á bæði gítar og
bassa frá því árið 1991.
Mest hef ég verið að leiðbeina
byrjendum á hljóðfærin en einnig hafa komið til mín
nemendur sem að eru lengra komnir.
Náminu er þannig hagað að þetta eru
einkatímar sem að eru 40 mínútur að lengd.
Nemendum eru kennd undirstöðuatriði í
hljóðfæraleik og leitast við að koma til móts við þarfir
hvers og eins eftir bestu getu allt
eftir því hvar nemandinn er staddur í náminu og eða færni á hljóðfærið.
Hafa ber í huga að þegar byggja á hús
byrjar enginn á því að smíða þakið fyrst
enda verður ekkert hús betra en
grunnurinn sem að það stendur á.
Þegar byrjandi á í hlut er best að
byrja á því að taka 10 tíma þannig að einhver árangur náist.
Þó er hægt að semja um annað séu
aðstæður þannig að það henti einhverja hluta betur.
Einnig er hægt að kaupa gjafakort hafi
einhver í huga að gefa gítartíma eða bassatíma sem gjöf.
Kennslan fer fram í Kópavogi og verður
kennt á eftirfarandi hljóðfæri:
rafgítar, kassagítar ( þjóðlaga og
eins á klassíska ) og rafbassa ( byrjendum ).
Áhugasamir vinsamlegast hafið samband
í síma: 820-6275
og eða sendið rafpóst á gilsi (hjá) gilsi.com.