Jens Valur Ólason

Ég er kominn yfir til Háskólans í Reykjavík sem kerfisstjóri, meira seinna.

Ég hef starfað frá 1. janúar 2002 sem Kerfisstjóri í Tæknideild, Upplýsingatæknisviði hjá Landspítala Háskólasjúkrahúsi. Starf mitt þar er mjög breytilegt, alltaf skemmtilegt og ég vinn með skemmtilegu fólki. Ég þarf bara að sjá um 4 hluti: Novell, Microsoft, Trend vírusvarnir og allt annað (starfssviðið er mjög breytilegt).

Stærsta verkefni okkar í dag er að innleiða Microsoft Active directory sem við áætlum að klára fyrir sumarið 2007. Þar með verður Novell umhverfið lagt niður. Mín verkefni eru mörg og margvísleg. Ég rek 5 Novell.servera í dag og stefni að því að fækka þeim. Microsoft þjónarnir okkar eru rúmlega 100. Notendur í MS eru rúmlega 3000 og fer fjölgandi. Vinnustöðvar eru um 3000 og prentarar um 700. Einstök kerfi eru nálægt 200 og við notum Altiris til að dreifa þeim flestum ásamt því að nota Altiris til að stjórna vinnustöðvunum.

Ég vinn við innleiðingar og rekstur á öllum mögulegum kerfum þ.á.m. ýmsum mælitækjum nefmælum, lungnamælum, Legu, Sögu, RIS, hússtjórnarkerfum, stórtölvutengingum, Oracle E Business Suite, Impax myndaskoðun (röntgegn, segulómunarmyndir) og allt þess á milli. Ég kem einnig að uppsetningu vinnustöðva og leggja línur um hvað notendur geti og geti ekki gert.

Áður starfaði ég í 20 ár hjá Skýrr hf. Hér er lausleg samantekt á starfsferli mínum hjá Skýrr hf:

Ég byrjaði í árslok 1981 sem tölvari hjá Skýrr en áður hafði ég starfað þar í 2 sumur sem öryggisvörður hjá Skýrr. Eftir eins árs starf hjá Skýrr varð ég yfirtölvari og gegndi því starfi fram til janúar 1985 þegar ég fluttist í Notendaráðgjöf í Þjónustudeild.

Í Notendarágjöf starfaði ég við kennslu, forritun og alla þá aðstoð sem hópurinn gat veittt bæði notendum innanhús sem utanhúss. Hluti af starfinu var námskeiðahald. Ég kenndi á byrjendanámskeiðum fyrir nýja notendur. Ég sá um alla þjónustu og námskeið varðandi fyrirspurnakerfi Skýrr en þau voru Easytrieve, Spyrill (SuperNatural). Ég kenndi um tíma forritun í Natural fyrir notendur tölvukerfa Skýrr. Einnig var ég með aðstoð við Boðbera (póstkerfi) og ETC (ritvinnslukerfi).

Þegar PC væðing Skýrr hófst vorum við með þeim fyrstu innan Skýrr sem tókum upp þá tækni. Seinna þegar staðarnetsnetvæðing hófst vorum við einnig í fararbroddi innan Skýrr og tók ég þátt í netvæðingu Skýrr frá upphafi.

Meðal annarra verkefna sem ég vann sem notendaráðgjafi voru gagnaflutningar og vinnsla Lagasafnsins ásamt forritun fyrir viðskiptavini Skýrr.

Þegar Notendaráðgjöfin var lögð niður fór ég um tíma í Kerfisfræðideild Skýrr þar sem ég starfaði við forritun og viðhald í BÁR (Natural forritun).

Ég flutti mig síðan um set og fór í Þjónustudeildina þar sem ég sá um rekstur staðarnets Skýrr hf. Með tímanum færðist starfssviðið færst fram og aftur og m.a. hef ég unnið við Lotus Notes, McAfee vírusvörn, öryggismál, skjáherma, sjónvarpsútsendingar á netinu, húsnæðismál Skýrr hf og margt fleira.

Þau verkefni sem ég sinnti mest hjá Skýrr hf voru m.a.:

Almenn aðstoð innan og utanhúss við öll atriði sem viðkoma Skýrr hf

Rekstur gáttarþjónusta við stórtölvu Skýrr

Rekstur Novell og NT miðlara.

Uppsetningar á hverskonar á miðlurum og vinnustöðvum

Mat á vél og hugbúnaði vegna innkaupa

Uppsetning rekstur öryggiskerfis vegna myndavélakerfis

Vírusvarnir

Rekstur Notes umhverfis hjá Skýrr hf

Gerð geisladiska

Pökkun hugbúnaðar fyrir dreifingu og sölu

Uppsetning og aðlögun vél og hugbúnaðar

Tenging tölva í net og á Internet

ADSL tengingar

Tengingar notenda við Internet, Skýrr hf og RB

Uppsetning og aðlögun skjáherma (TN3270, QWS3270Plus, FerjuMeistari)

Þáttaka í hönnun lagnakerfis hjá Skýrr hf, byggingarnefnd (vegna nýbyggingar)

og almennt allt það sem kemur upp.

Nám og námskeið sem ég hef tekið:

Stúdent frá MS 1979

Hóf nám í Viðskiptafræði HÍ en hætti á fyrsta vetri

Stjórnunarfélag Íslands

1985    Leiðbeinendatækni og námskeiðsgerð

1986    Brain Manager

1986   Þjónustunámskeið

1987    Time Manager

1991    Excel

1991    Computer Security and Auditing (Tölvuendurskoðun)

Einar J. Skúlason

1991    Novell networks

1993        MS-Project

Microsoft Education Services námskeið hjá EJS: 

(sjá einnig neðar)

1994        Supporting and Administering Windows NT Server 3.5

1995        MS System Management Server 1.0

1995     Windows 95 installation & support

JC Ísland 1980-1983

Ræðunámskeið

Skipuleg nefndarstörf

Leiðbeinendanámskeið "Leiðir til samstarfs"

Tæknival. Novell námskeið.

1993    Novell Netware, Advanced System Manager (3.11)

1994    Netware 4.0 Administration

1994    Netware 4.0 Advanced Administration

1995    Networking Technologies

Opin Kerfi

1998    MS001 Microsoft Netkerfi (sjálfvirkar uppsetningar)

2000    Linux grunnnámskeið

2001    McAfee vírusvarnir

Nýherji

1997    Domino 4.5 /Notes 4.5 Kerfisstjórnun I 32 klst

Skýrr

1988   Software AG Natural námskeið (forritun)

1989    Hugbúnaðarskóli Skýrr (ýmis námskeið í Viðskiptafræðideild HÍ)

Rafiðnaðarskólinn

Ég hef lokið 4ra anna námi í Rafiðnaðarskólanum (vefsíður, forritun, kerfisfræði og netrekstur)

Microsoft Education Services námskeið hjá Rafiðnaðarskólanum:

2000    832: System Administration for Microsoft SQL server 7.0

2000    2154A: Implementing and Administering  Microsoft Windows 2000 Directory Services

2000    1561: Designing a Microsoft Windows 2000 Directory Services Infrastructure

2000    1560: Updating Support Skills from Microsoft Windows NT 4.0 to Microsoft Windows 2000

2001    MCP próf

Microsoft námskeið hjá LSH:

Námskeið hjá LSH á leiðinni til MCSE

Altiris námskeið á hjá  EJS:

2005 #612 Client Management Suite Training

Trend námskeið á hjá  EJS:

2005 OfficeScan 6.x, Server Protect, ScanMail og Control Manager

 

Nánari persónulegar upplýsingar eru:

Jens Valur Ólason 

jens@jensolason.com

Ég er kvæntur og á 3 börn (dætur fæddar 87 og 89 og dreng fæddan 93).