Serverinn er QDI Superb 4L 1,6 ghz með 512Mb RAM. Ég ræsi af USB lykli og keyri 3 diska í Freenas software RAID5 á Promise SATA 300 spjaldi. Einn diskanna er tengdur í ATA tengi með ATA í SATA breytistykki.
Stýrikerfið notar innnan við 30Mb af lyklinum.
Stærsti vandinn við Freenas er afar slæmur hraði í SMB samskiptum. Kostirnir eru ýmsir. T.d. var ég með þessa diska í annarri vél. Að gamni mínu tók ég diskana og tengdi við núverandi vél. Eftir að hafa tengt netkortið og flutt configið yfir gat ég ræst upp Freenas og haft aðgang að sömu gögnunum án þess að hafa áhyggjur af því hvaða diskur tengdist hver. Freenas er því mjög færanlegt svo lengi sem afrit af config er til.
Freenas handbókin ( PDF )